Formúla 1

Webber: Hef náð nokkrum af markmiðunum

Mark Webber fagnar og hefur gert það oftar en nokkur annar ökumaður á árinu.
Mark Webber fagnar og hefur gert það oftar en nokkur annar ökumaður á árinu. Mynd: Gettty Images
Mark Webber, forystumaður stigamótsins hefur trú á því að Red Bull bíllinn verði góður á öllum brautum sem eftir á að nota á keppnistímabilinu. “Við höfum sýnt það á áriniu að bíllinn lætur vel á öllum brautum og vonandi er engin braut sem laðar fram veikleika”, sagði Webber í frétt á autosport.com. “Singapúr ætti að henta vel, Brasilía og Abu Dhabi. Við höfum áhyggjur af beinu köflunum á sumum brautum, eins og Monza. En bíllinn er mjög, mjög góður á flestum brautum. Við erum því klárir í slaginn.” “Það væri gaman að vinna mótið á Spa og Suzuka og nokkur önnur mót. Þá verðum við að gæta að þolgæðum bílsins. Það hefur hikstað hjá okkur hér og þar, en það þarf allt að ganga upp til að landa sigri. Við Sebastian pressum hvor á annan til að leggja hvorn annan í mótum.” “Ég hef náð nokkrum af mínum markmiðium á árinu, sem er stórkostleg, en það eru spennandi mót framundan. Merkilegt mót sem gaman væri að vinna. Hver sigur færir okkur 25 stig og við verðum að standa okkur vel alls staðar. Ef það gengur eftir er aldrrei að vita hvað getur borist okkur lí loka ársins”, sagði Webber.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×