Burns verri í dag en í gær - er í skoðun á sjúkrahúsinu í Keflavík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. apríl 2010 13:30 Draelon Burns. Mynd/Daníel
Það er mikil óvissa í kringum framhaldið hjá Draelon Burns, leikmanni Keflavíkur, sem gat aðeins spilað í rúmar 22 mínútur í öðrum úrslitaleik Keflavíkur og Snæfells í gær. Burns skoraði bara átta stig í leiknum og var greinilega meiddur. Það er ekki vitað nákvæmlega hversu alvarleg meiðslin hjá Burns eru. Hann var því sendur í skoðun á bráðamóttökunni á sjúkrahúsinu í Keflavík þar sem hann er þessa stundina.. „Hann er verri í dag en hann var í gær sem er slæmt. Við vitum ekki nákvæmlega hvað er að angra hann. Núna virðist þetta vera aðeins stífara og hann er mjög þungur," sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur í samtali við Vísi. „Við verðum bara að fá að vita hvort að þetta sé eitthvað meira eða minna og vinna síðan út frá því. Við þurfum þá að athuga hvort eitthvað sé hægt að gera fyrir hann," segir Guðjón sem er ekki farinn að leita að nýjum leikmanni en viðurkennir að það gæti orðið lausnin. „Við erum ekki farnir að leita að nýjum leikmanni ennþá en við verðum að gera eitthvað ef þetta fer á versta veg. Við munum þá líta í kringum okkur en ég er að bíða eftir að heyra í honum," sagði Guðjón en Burns er eins og er í læknisskoðun.
Dominos-deild karla Mest lesið Sú besta í heimi komst ekki á blað hjá íslenska landsliðsþjálfaranum Fótbolti Dauðaslys í maraþonhlaupi Sport Átta þúsund krónur fyrir miða á úrslitaleik HM í stað 529 þúsund Fótbolti Öðruvísi lið en áður hafa sóst í Frey: „Vita hvar ég stend“ Fótbolti Man United ósátt við Marokkó og FIFA Enski boltinn Hefur aldrei séð svona ofbeldi: „Þetta var allt of mikið“ Sport Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Enski boltinn Enginn blóðugur en einn brjálaður á HM í kvöld Sport Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Enski boltinn New York Knicks vann titil í nótt Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Sjá meira