Formúla 1

Webber fremstur á ráslínu í Mónakó

Mark Webber á Red Bull var fljótastur á götum Mónakó í dag.
Mark Webber á Red Bull var fljótastur á götum Mónakó í dag. Mynd: Getty Images

Ástralinn Mark Webber á Red Bull náði besta tíma í tímatökum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Mónakó, sem fram fer á morgun. Webber varð á undan Robert Kubica frá Póllandi, en þriðji varð Sebastian Vettel á Red Bull.

Fernado Alonso ræsir síðastur af stað og af þjónustusvæðinu eftir að hann gerði mistök á lokaæfingu keppnisliða og klessti bíl sinn. Hann komst því ekki í tímatökuna og varð að horfa á.

Félagi Alonso hjá Ferrari, Felipe Massa varð fjórði í tímatökunni og Lewis Hamilton hjá McLaren fimmti. Þá komu Nico Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes, en Jenson Button á McLaren náði aðeins áttunda sæti, en hann vann þessa keppni í fyrra.

Bein útsending er frá kappakstrinum í Mónakó kl. 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

sjá brautarlýsingu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×