Formúla 1

Sögulegur samningur Ferrari

Þjónustuhlé hjá Alonso með Ferrari í fyrsta móti ársins var án bensínáfyllingar eins og nýjar regur segja til um.
Þjónustuhlé hjá Alonso með Ferrari í fyrsta móti ársins var án bensínáfyllingar eins og nýjar regur segja til um. Mynd: Getty Images
Ferrari tilkynnti í dag framlengingu samnings við Shell, sem hefur verið í gangi frá árinu 1929. Ferrari liðið mun starfa áfram til ársins 2015 með Shell, en saman hafa fyrirtækin unnið fjölda titla og sigra í Formúlu 1, ekki síst með Michael Schumacher á sínum tíma. Fyrirtækin tvö hafa starfað saman í 450 mótum um helgina. Stefano Domenicali, framkvæmarstjóri Ferrari segir samstarfið hafa verið mikilvægt Ferrari. "Shell hefur verið með Scuderia (Ferrari) frá því það var stofnað árið 1929 og hefur átt stóran þátt í mörgum sigrum okkar. Það er eldhugur, samstarfsvilji og tæknilegt innsæi sem skilar sér frá brautinni á göturnar meðal almennings. Þetta er það sem Shell hefur að leiðarljósi og styður þetta óvenjulega samstarf sem er hluti af sögu akstursíþrótta." Samstarfið byrjaði vel á þessu ári þar sem Ferrari náði fyrsta og öðru sæti í fyrsta móti ársins og Shell þróaði nýtt afbrigði eldsneytis til að mæta þeirri staðreyna að ökumenn verða að ræsa af stað með fulla bensíntanka í keppni. Áður fyrr voru bensínáfyllingar leyfðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×