Íslenski boltinn

Enn fellur Ísland á FIFA-listanum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari.

Íslenska A-landsliðið í knattspyrnu er sem fyrr í frjálsu falli á FIFA-listanum. Ísland hrundi niður um tíu sæti að þessu sinni og er nú í 110. sæti.

Þetta er næstlélegasti árangur Íslands á listanum en liðið fór í 117. sæti í ágúst árið 2007 er Eyjólfur Sverrisson stýrði liðinu.

Þetta hrun Íslands er eðlilegt í ljósi þess að liðið hefur aðeins unnið einn alvöruleik síðan Ólafur Jóhannesson tók við landsliðinu.

Spánverjar eru á toppi listans, Holland í öðru sæti og Brasilía í því þriðja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×