Körfubolti

Stuðningsmenn KR fögnuðu með klósettrúllukasti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/Daníel
Mynd/Daníel

KR vann í kvöld afar góðan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi og jafnaði þar með rimmu félaganna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Staðan í einvíginu, 1-1.

Stuðningsmenn KR, sem mættu á leikinn, réðu sér vart fyrir kæti og um leið og lokaflautið gall köstuðu þeir fjölmörgum klósettrúllum inn á völlinn. Ekki algeng sjón á íslenskum íþróttaleikjum þó slíkt tíðkist víða erlendis.

Athæfið fór verulega í taugarnar á tveimur leikmönnum Snæfells - Sveini Davíðssyni og Emil Jóhannssyni - sem grýttu einhverjum rúllum aftur upp í stúku til stuðningsmanna KR.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×