Enski boltinn

City byrjar viðræður um David Silva

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Silva er hér til hægri.
Silva er hér til hægri. GettyImages
Manchester City hefur talað við Valencia um að kaupa af því David Silva. Forráðamenn Valencia staðfestu þetta í gærkvöldi. Silva er talinn vilja fara til Real Madrid og líklegt er að hann bíði í nokkra daga og sjái hvort José Mourinho vilji kaupa hann þangað. Valencia er tilbúið til að selja Silva, en ekki ódýrt. Hann kostar að minnsta kosti 25 milljónir punda. Hann er einn af efstu mönnum á óskalista City. Hann inni heldur meðal annars Edin Dzeko hjá Wolfsburg, Jérôme Boateng hjá Hamburg, James Milner hjá Aston Villa og Mikel Arteta Everton.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×