Körfubolti

Suðurnesjaslagur í úrslitum?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brenton og félagar fá ÍR í heimsókn.
Brenton og félagar fá ÍR í heimsókn. Mynd/Valli

Það gæti orðið Suðurnesjaslagur í úrslitum Subway-bikars karla í körfubolta en dregið var í undanúrslitin í dag.

Grindavík tekur á móti ÍR en Keflavík fær Snæfell í heimsókn.

Hjá stelpunum er líklegt að Haukar og Keflavík mætist í úrslitum en þau eru talsvert sterkari en andstæðingurinn sem þau mæta.

Gamla klisjan um að allt geti gerst í bikarnum deyr samt aldrei.

Drátturinn:

Konur:

Fjölnir · Keflavík

Haukar · Njarðvík

Karlar:

Grindavík · ÍR

Keflavík · Snæfell

Kvennaleikirnir fara fram 30.-31. janúar en karlaleikirnir fara síðan fram helgina eftir eða 7. til 8. febrúar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×