Formúla 1

Titilmöguleikar McLaren fara minnkandi

Lewis Hamilton fékk far í forláta farkosti þegar ökumenn voru kynntir fyrir kappaksturinn í Japan í gær.
Lewis Hamilton fékk far í forláta farkosti þegar ökumenn voru kynntir fyrir kappaksturinn í Japan í gær. Mynd: Getty Images

Möguleikar McLaren ökumanna í Formúlu 1 á því að vinna meistaratitilinn í minnkuðu talsvert þegar keppinautar þeirra röðuðu sér í þrjú efstu sætin í kappakstrinum í Japan á sunnudag.

Lewis Hamilton er í fjórða sæti í stigamótinu og Jenson Button í því fimmta. Þá er McLaren liðið í öðru sæti í stigamóti bílasmiða á eftir Red Bull sem vann tvöfaldan sigur á sunnudag. Red Bull er með 426 stig, en Mercedes 381 í keppni bílasmiða.

Mark Webber er efstur í stigamóti ökumanna með 220 stig, en Fernando Alonso og Sebastian Vettel eru með 206, en Hamilton er með 192 og Jenson Button 189.

Martin Whitmarsh var spurður að því á autosport.com hvort McLaren væri að missa af lestinni hvað titlanna varðar.

"Við verjum ekki tíma okkar í að hafa áhyggjur, heldur verjum við tíma okkar í að gera eitthvað í málunum. Við verðum að fullvissa okkur um að bíllinn sé traustur, verði betri og stefnum á að gera okkar besta í næstu mótum."

Hamilton gekk ekki sérlega vel þessa mótshelgina. Hann klessti bíl sinn á föstudagsæfingum og gat því lítið prófað bílinn. Síðan fékk hann 5 sæta refsingu eftir tímatökuna, þar sem skipta þurfti um gírkassa í bíl hans.

En gæfan var ekki með honum því þriðji gírinn bilaði í nýja gírkassanum í keppninni, en hann komst samt í endamark í fimmta sæti. Whitmarsh sagði að þrátt fyrir að eitthvað hefði bilað í gírkassa á ný, þá myndi Hamilton ekki fá refsingu fyrir næsta mót, ef skipta þarf um gírkassa.

"Við munum leggja allt í sölurnar í þremur síðustu mótunum. Við hættum ekki fyrr en möguleikarnir eru ekki lengur til staðar", sagði Whitmarsh.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×