Formúla 1

Schumacher spenntur fyrir Suzuka

Michael Schumacher hefur unnið mótið á Suzuka sex sinnum, en er hér í hásæti á brautnni í Singapúr og liðsfélagi hans Nico Rosberg er í baksýn.
Michael Schumacher hefur unnið mótið á Suzuka sex sinnum, en er hér í hásæti á brautnni í Singapúr og liðsfélagi hans Nico Rosberg er í baksýn. Mynd: Getty Images
Michael Schumacher er sexfaldur sigurvegari á Suzuka brautinni í Japan, sem verður notuð um næstu helgi. Mótið er eitt af fjórum mótum í lokaslagnum um Formúlu 1 meistaratitilinn, þar sem fimm ökumenn keppa um titilinn.

Schumacher á ekki möguleika á titlinum en hefur unnið oftast þeirra sem keppa. , Brautin í Suzuka er í uppáhaldi hjá honum og verður keppt á henni í 22 skipti. Brautin sem er 5.8 km löng er sú eina sem er áttulaga og er ekið yfir og undir brú. Schumacher hefur ekki keyrt á brautinni síðan 2006.

"Suzuka bar alltaf ein af uppáhaldsbrautunum mínum, þar sem hún er stórkostleg á köflum. Það reynir mikið á tæknilegt innsæi og skapar vellíðan, þegar maður nær að raða beygjunum vel saman í akstri", sagði Schumacher í tilkynningu frá Mercedes.

"Ég fer til Japan með góðar minningar í farteskinu, þar sem ég átti nokkur góð mót þar. Vonandi get ég bætt í safnið og hlakka til verkefnisins. Við munum reyna að ná okkar besta fram um helgina."

Félagi Schumacher hjá Mercedes, Nico Rosberg hefur náð betri árangri á árinu og hann er hrifinn af brautinni.

"Suzuka er frábær braut og að mínu mati er hún ein sú besta á árinu ásamt Spa brautinni. Fyrsta tímatökusvæðið er hápunktur brautarinnar og er krefjandi. Okkur hefur gengið þokkalega að ná árangri að undanförnu og vonumst til að halda því áfram í Japan", sagði Rosberg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×