Körfubolti

Ingi Þór: Þarf að pússa nýju púslin betur

Elvar Geir Magnússon skrifar
Ingi Þór Steinþórsson hrannar inn titlum hjá Snæfelli.
Ingi Þór Steinþórsson hrannar inn titlum hjá Snæfelli.

„Það er aldrei leiðinlegt að vinna titla. Ég hef aldrei áður unnið þennan sem aðalþjálfari," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, eftir að liðið vann KR í úrslitaleik Lengjubikarsins í dag.

„Við erum stoltir af því að vera handhafar alla þriggja stóru titlana. Við vorum bróðurpart leiksins að elta en um leið og lykilmenn okkar stigu upp í lokin var það nóg. Við nutum góðs af því að þeir hittu illa."

„Leikurinn var ekki fallegur en það skiptir engu máli. Þetta snýst um að vera yfir í lokin og við erum bara stoltir af því að hafa verið það."

„Við eigum enn nokkuð í land. Það eru ný púsl í spilinu og það þarf að pússa þau betur til. Við ætlum að vera með. Deildin verður gríðarlega jöfn í vetur og framundan frábær körfuboltavetur," sagði Ingi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×