Skuldaþak er skynsamlegt Ólafur Stephensen skrifar 19. ágúst 2010 06:00 Fréttablaðið sagði í gær frá tillögum, sem meðal annars eru unnar í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ganga út á að þak verði sett á það hversu mikið sveitarfélögum verður heimilt að skuldsetja sig. Rætt er um að horfa þá til allra skulda sveitarfélaganna, bæði A-hlutans, sem tekur til hefðbundins rekstrar og er fjármagnaður með skattfé, og B-hlutans, en í honum eru fyrirtæki í eigu sveitarfélaganna með sjálfstæða tekjustofna, til dæmis hafnir og orkuveitur. Tillögurnar ganga út frá að skuldaþakið verði 150% af heildartekjum sveitarfélaganna. Verði þessar tillögur að lögum, gerir það út af fyrir sig ekki mikið til að bæta þá afleitu fjárhagsstöðu, sem mörg sveitarfélög eru komin í. Skuldastaða þeirra margra er umfram markið sem rætt er um og lögfesting þess verður þannig ekki annað en staðfesting á þeirri leið heilbrigðrar skynsemi að reyna að ná skuldunum niður með aðhaldi og hagræðingu í rekstri. Hins vegar getur skuldaþak komið í veg fyrir að staðið verði að rekstri sveitarfélaga með jafnábyrgðarlausum hætti og reyndin er um þau mörg á undanförnum árum. Það er staðreynd að mörg sveitarfélög skuldsettu sig í góðærinu, þrátt fyrir vaxandi tekjur. Stjórnmálamenn, sem vildu kaupa sér vinsældir, létu ekki duga að framkvæma fyrir tekjuaukann, hvað þá að greiða niður skuldir, heldur nýttu sér jafnframt aðganginn að ódýru fjármagni til að taka lán. Mörg dæmi eru um að þegar innlendur lánamarkaður varð tregari til að lána, hafi verið tekin erlend lán. Það fór síðan eins og það fór þegar krónan hrundi. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenzkra sveitarfélaga, sagði í fréttum Bylgjunnar í gær að væri fjárhagsstaða sveitarfélaga borin saman við stöðu ríkisins kæmu sveitarfélögin vel út úr þeim samanburði. Það er rétt svo langt sem það nær. Halldór gleymir hins vegar að geta þess að ríkissjóður hafði greitt niður skuldir í góðærinu og var betur í stakk búinn en ella að taka á sig þá gríðarlegu bagga, sem fylgt hafa bankahruninu, þar með talið gjaldþrot Seðlabankans, endurfjármögnun bankanna og Icesave-skuldirnar. Sveitarfélögin juku skuldir sínar þegar þeim bauðst einmitt sama tækifæri og ríkinu til að greiða þær niður. Rétt eins og hjá ríkinu er framundan mikil tiltekt í fjármálum sveitarfélaganna. Hugsanlega knýr hún fram fleiri sameiningar sveitarfélaga. Þau eru enn of mörg og lítil og hafa sum hver ekki burði til að takast á við lögbundin verkefni. Skuldaþakið er skynsamlegt, vegna þess að ekki er víst að allir stjórnmálamenn hafi lært af reynslunni. Og á eftir þeim sem nú sitja í sveitarstjórnum kunna að koma pólitíkusar sem finnst í lagi að skuldsetja næstu kynslóð til að koma hugmyndum sínum sem fyrst í framkvæmd. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Skoðanir Mest lesið Íslenska er leiðinleg Nói Pétur Á Guðnason Skoðun Árásir á gyðinga í skugga þjóðarmorðs Helen Ólafsdóttir Skoðun Hverjum voru ráðherrann og RÚV að refsa? Júlíus Valsson Skoðun Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun „Quiet, piggy“ Harpa Kristbergsdóttir Skoðun Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Kjósið reið og óupplýst! Ragnheiður Kristín Finnbogadóttir Skoðun Þrjú slys á sama stað en svarið er: Það er allt í lagi hér! Róbert Ragnarsson Skoðun Réttar upplýsingar um rekstur og fjármögnun RÚV Stefán Eiríksson,Björn Þór Hermannsson Skoðun Ísland er ekki í hópi þeirra sem standa sig best í loftslagsmálum Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun
Um ólaunaða vinnu, velsæld og nýja sýn á hagkerfið Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Soffía S. Sigurgeirsdóttir,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun