Íslenski boltinn

Hermann byrjar gegn Ísrael - byrjunarliðið klárt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur tilkynnt byrjunarliðið sem mætir Ísrael í vináttulandsleik ytra annað kvöld.

Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliðinu og tekur því aftur við fyrirliðabandinu. Hann hefur verið lengi frá vegna meiðsla en hann sleit hásin í mars síðastliðnum.

Alfreð Finnbogason fær einnig tækifæri í byrjunarliðinu sem og Steinþór Freyr Þorsteinsson.

Mikil forföll hafa verið í íslenska landsliðinu og getur Ólafur aðeins verið með sextán leikmenn á skýrslu í leiknum þó svo að honum sé leyfilegt að vera með átján leikmenn.

Byrjunarliðið er þannig skipað:

Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson

Hægri bakvörður: Birkir Már Sævarsson

Vinstri bakvörður: Indriði Sigurðsson

Miðverðir: Hermann Hreiðarsson, fyrirliði og Kristján Örn Sigurðsson

Tengiliðir: Eggert Gunnþór Jónsson og Aron Einar Gunnarsson

Sóknartengiliður: Alfreð Finnbogason

Hægri kantur: Birkir Bjarnason

Vinstri kantur: Steinþór Freyr Þorsteinsson

Framherji: Kolbeinn Sigþórsson






Fleiri fréttir

Sjá meira


×