Körfubolti

IE-deild karla: Njarðvík á toppinn og Grindavík tapaði fyrir Fjölni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Njarðvík vann góðan sigur á Króknum.
Njarðvík vann góðan sigur á Króknum. Mynd/Anton

Njarðvík skellti sér á toppinn í Iceland Express-deild karla í kvöld er liðið vann öruggan sigur á Tindastóli á Sauðárkróki. Alls fóru þrír leikir fram í kvöld.

Spennuleikur kvöldsins var í Röstinni þar sem næstneðsta lið deildarinnar, Fjölnir, sótti Grindavík heim. Fjölnismenn lengstum með forystuna en Grindavík jafnaði og lokasekúndurnar æsispennandi.

Darrell Flake klúðraði tveim vítaskotum þegar 25 sekúndur voru eftir af venjulegum leiktíma og staðan jöfn. Bæði lið töpuðu svo boltanum áður en leiktímanum lauk og grípa varð til framlengingar.

Fjölnismenn voru sterkari þar en Grindavík kom aftur til baka og komst yfir þegar hálf mínúta var eftir. Fjölnir skoraði þriggja stiga  körfu er 18 sekúndur lifðu leiks og það dugði til sigurs.

Úrslit kvöldsins:

Grindavík-Fjölnir  109-111 (99-99)

Stig Grindavíkur: Darrell Flake 38, Ómar Sævarsson 22, Guðlaugur Eyjólfsson 20, Ólafur Ólafsson 17, Páll Axel Vilbergsson 6, Nökkvi Jónsson 3, Björn Brynjólfsson 3.

Stig Fjölnis: Ægir Steinarsson 33 (13 stoðs.), Chris Smith 21, Tómas Tómasson 20, Magni Hafsteinsson 12, Arnþór Guðmundsson 12, Jón Sverrisson 6, Sindri Kárason 5, Garðar Sveinbjörnsson 2.

FSu-Hamar  78-91

Stig FSu: Richard Williams 27, Aleksas Zimnickas 15, Chris Caird 13, Dominic Baker 7, Kjartan Kárason 7, Sæmundur Valdimarsson 4, Jake Wyatt 3, Orri Jónsson 2.

Stig Hamars: Andre Dabney 35 (11 frák.), Marvin Valdimarsson 23, Páll Helgason 13, Viðar Hafsteinsson 9, Svavar Pálsson 5, Ragnar Nathanealsson 2, Bjarni Lárusson 2, Oddur Ólafsson 2.

Tindastóll-Njarðvík  80-106

Stig Tindastóls: Michael Giovacchini 19, Kenney Boyd 16, Axel Kárason 10, Friðrik Hreinsson 9, Svavar Birgisson 9, Helgi Margeirsson 8, Helgi Viggósson 6, Sigmar Björnsson 2.

Stig Njarðvíkur: Jóhann Árni Ólafsson 18, Friðrik Stefánsson 15, Nick Bradford 14, Hjörtur Hrafn Einarsson 12, Guðmundur Jónsson 10, Rúnar Erlingsson 8, Kristján Sigurðsson 6, Páll Kristinsson 6, Grétar Garðarsson 5, Magnús Gunnarsson 5, Egill Jónasson 4, Elías Kristjánsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×