Formúla 1

Red Bull tilbúið í titilslaginn

Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull og Christian Horner, framkvæmdastjóri liðsins eru klárrir í titilslaginn.
Adrian Newey, aðalhönnuður Red Bull og Christian Horner, framkvæmdastjóri liðsins eru klárrir í titilslaginn. Mynd: Getty Images
Christian Horner, framkvæmdarstjóri Red Bull segir lið sitt tilbúið í titilslag við McLaren og Ferrari, eftir sigur í mótinu á Sepang brautinni í gær. "Við berum mikla virðingu fyrir keppinautum okkar, en við erum mikla trú á okkar liði núna. Við erum með góðan mannskap og tvo góða ökumenn og höfum þekkinguna til að keppa við McLaren og Ferrari það sem eftir lifir tímabilsins", sagði Horner á vefsíðu Autosport. Red Bull vann tvöfaldan sigur á Sepang brautinni í gær, þegar Sebastian Vettel kom á undan Mark Webber í endamark. "Fernando Alonso gekk illa í gær og Ferrari er með vélarvandamál, sem við þekkjum af eigin raun og því er staðan í stigamótinu heillavænleg. En það er mikið eftir af mótinu. Það besta við mótið er að þrír mismunandi ökumenn hafa unnið í þremur mótum og engin ökumaður er að stinga af. Vettel hefur verið stórkostlegur og heldur haus sama á hverju gengur. Hann veit að hann er með fljótan bíl og því er hann einbeittur." "Vettel hefði getað unnið fyrstu tvö mótin, en það gekk ekki upp, en núna er hann búinn að vinna sigur og báðir ökumenn okkar eru á stigatöfulunni og það er gott fyrir meistaramótið."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×