Enski boltinn

Toure á leið til Englands

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Yaya Toure.
Yaya Toure. Nordic Photos / AFP

Yaya Toure mun þegar hafa gengið frá samningi við lið í ensku úrvalsdeildinni að sögn umboðsmanns hans. Toure er nú á mála hjá Barcelona.

Umboðsmaðurinn, Dimitri Seluk, vildi ekki nafngreina umrætt félag en Toure hefur verið orðaður við Manchester City að undanförnu. Bróðir hans, Kolo, leikur nú með City.

„Ef allt gengur vel mun Yaya fara til Englands," sagði Seluk við spænska fjölmiðla. „En það er ekki hægt að greina frá félaginu. Við höfum þegar gengið frá samningnum og þetta verður allt frágengið áður en HM byrjar."

Toure gekk í raðir Barcelona frá Monaco árið 2007.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×