„Ég er algjörlega með því að að jólastemning byrji í lok október byrjun desember. Við Íslendingar þurfum jólaljós og fegurð í skammdeginu. Allt sem gleður augað og hjartað."

„Hún skreytir snemma og gleðst eins og barn yfir jólasveinum, skreytingum, jólalögum og kökum þannig að mamma er mín jólatenging," segir Selma.

„Í ár var ég snemma á ferðinni út af vinnutörn sem ég vissi að var í vændum en ég á eftir að kaupa fjórar gjafir og jólamatinn. Hreingerningin er eitthvað sem ég hlakka ekki til en tréð er komið út á svalir," segir hún.

„Ég er mikið jólabarn í ár á annan hátt en venjulega. Ég er að leikstýra jólafrumsýningu Þjóðleikhússins, söngleiknum um Óliver Twist. Það er mikill heiður og búið að vera mikið ævintýri. Sagan er dásamleg og snertir allan tilfinningaskalann."
„Hún hefur sannan jólaanda, minnir okkur á að vera þakklát fyrir það sem við eigum, ekki gleyma þeim sem minna mega sín og umfram allt: Að elska hvort annað og virða."

„Það er ástæða fyrir því að sagan um Óliver Twist er sígild. Hún á alltaf erindi. Og hún á sérstakt erindi á Íslandi í dag, í okkar þjóðfélagsaðstæðum og árferði."
„Hún á sér víða skírskotun og margir karakteranna í Óliver Twist eru til í raunveruleikanum, í aðeins öðrum aðstæðum á öðrum tíma. Sjón er sögu ríkari!" segir Selma að lokum og kveðjur með hlýrri jólakveðju.-elly@365.is