Formúla 1

Hamilton slær Button ekki út af laginu

Jenson Button í hópi margra af bestu ökumönnum heims í Formúlu 1.
Jenson Button í hópi margra af bestu ökumönnum heims í Formúlu 1. mynd: Getty Images

Bretinn Jenson Button, núrverandi meistari., segir að Lewis Hamilton hafi ekkert slegið sig útaf laginu þó að hann hafi náð betri árangri í fyrsta móti ársins með McLaren.

Button gekk til liðs við McLaren í vetur og vildi keppa við Hamilton af fullu afli. Fannst spennandi kostur að mæta honum á samskonar ökutæki.

„Sjálfstraust mitt er í góðu lagi. Hamilton er frábær ökumaður, eins og flestir á ráslínunni eru. Hann hefur reynslu af McLaren og ég hef ekki trú á því að hann hafi verið fljótari en ég tímatökum útaf því.

Það er jafn leikur á milli okkar, en ég þarf að finna uppsetningu í bílnum sem hentar mér. Tæknimennirnir hafa hlustað á hugmyndir mínar og það hefur komið að notum", sagði Button í spjalli sem birtist á vefsíðu Autosport.

„Ég var ekki ánægður með hvernig bíllinn var í tímatökunni og þarf að bæta það. En við vorum svekktir með stöðuna, aðallega hvað tímann varðar í fyrsta bíl. En bíllinn reyndist vel í keppninni hvað hraða varðar. Ég hefði viljað fá fleiri stig, en tel að við getum færst ofar í næsta móti," sagði Button sem keppir í Ástralíu um aðra helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×