Skýrsla Rannsóknarnefndar frestast um 2 - 3 vikur Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. febrúar 2010 17:08
Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis mun ekki birtast fyrr en eftir tvær til þrjár vikur, samkvæmt tilkynningu sem Rannsóknarnefndin sendi frá sér í dag. Í tilkynningu frá Rannsóknarnefnd Alþingis segir að henni hafi nú borist svör frá þeim 12 einstaklingum sem veittur var kostur á að senda nefndinni athugasemdir. Með bréfum nefndarinnar hafi þessum einstaklingum verið gefinn kostur á að gera skriflega grein fyrir afstöðu sinni til atriða sem nefndin hefði til athugunar að fjalla um í skýrslu sinni á þeim grundvelli að um hefði verið að ræða mistök eða vanrækslu af þeirra hálfu í þeirri merkingu sem þessi hugtök eru notuð í lögum um nefndina. „Þau svör og fylgigögn sem nefndinni hafa borist eru umfangsmikil eða nær 500 blaðsíður alls. Fyrir nefndinni liggur nú að fara yfir þessi svör og þau gögn sem þeim fylgdu, taka afstöðu til þeirra og ganga endanlega frá skýrslu nefndarinnar til Alþingis. Það er ljóst að þessi lokavinnsla á skýrslunni, frágangur og prentun hennar mun taka nokkurn tíma en áætlanir nefndarinnar miða við að því verði lokið eftir tvær til þrjár vikur," segir í tilkynningunni. Upphaflega stóð til að skýrslan kæmi út í nóvember, en þá var tilkynnt um að útgáfan myndi frestast til 1. febrúar. Skömmu fyrir 1. febrúar var svo tilkynnt að útgáfan myndi frestast fram í lok febrúar.
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fleiri fréttir Ferðamannrúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjá meira