Justin Shouse: Til í að fórna tönn fyrir undanúrslitin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2010 22:27 Justin Shouse lék vel í kvöld.
Justin Shouse átti frábæran leik í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þegar Stjarnan tryggði sér oddaleik á heimavelli með 95-91 sigri í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum Iceland Express deild karla. Hörður Magnússon lýsti leiknum á Stöð Sport og hann greip Justin Shouse í viðtal eftir leikinn. „Við höfum tekið stuðningsmennina okkar í rússibanaferðir í leikjum okkar í vetur og þetta var því kannski dæmigerður leikur fyrir okkar lið en okkur tókst að hanga á forustunni og tryggja okkur oddaleik á fimmtudaginn," sagði Justin eftir leikinn. Hann fagnaði einnig að hans gömlu félagar í Snæfelli væru komnir í undanúrslitin. „Það eru frábærar fréttir fyrir Snæfell og ég held alltaf með mínum gömlu vinum í Stykkishólmi. Það er frábært fólk í Hólminum og ef við höldum áfram að vinna þá hittumst við kannski seinna í úrslitakeppninni," segir Justin brosandi. Justin fékk vænt olnbogaskot frá Njarðvíkingnum Guðmundi Jónssyni undir lok leiksins, atvikið sást vel í sjónvarpinu og Hörður spurði hann út það. „Þetta er eitthvað sem þessir karlar hafa verið að gera við mig í allan vetur. Ég er bara farinn að búast við þessu því liðin eru komin til að berjast og láta finna fyrir sér. Þeir vilja vinna og við viljum vinna og það mikil keppnisskap í þessum strákum," sagði Justin og bætti við: „Ég vona að halda öllum tönnunum mínum eftri þetta einvígi en ef ég tapa einni tönn og við vinnum á fimmtudaginn þá sætti ég mig við þá fórn," sagði Justin.
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira