Íslenski boltinn

Stelpurnar okkar: Vonbrigði á vonbrigði ofan

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Rakel var á hækjum eftir leikinn.
Rakel var á hækjum eftir leikinn. Fréttablaðið/Daníel
Íslensku stelpurnar voru súrar eftir tapið gegn Frökkum og vonbrigðin leyndu sér ekki. Guðbjörg Gunnarsdóttir spilaði í markinu og fannst leikurinn nokkuð góður.

„Við lögðum upp með að spila hápressu og það var óheppni að byrja með vindinum. Hann var mjög stífur en svo lægði nánast í seinni hálfleik. Auðvitað hafði það áhrif. Við ætluðum að reyna að skora þrjú mörk en skoruðu ekkert og auðvitað eru það vonbrigði. Þó að við hefðum haldið hreinu hefði það ekki skipt máli. Ég veit ekki hvort það sé hægt að tala um að við höfum brugðist, Frakkar eru með svo gott lið. En auðvitað bregðumst við ef við töpum heima, hér á enginn að vinna okkur," sagði Guðbjörg.

Hún fékk á sig mark þegar Frakkar fundu hana í einskinsmannslandi. „Ég átti að spila mjög framarlega, sem aftasti varnarmaður í rauninni. Það gerði ég. Þegar svona bolti kemur innfyrir stoppar vindurinn hann stundum og það gerðist þegar þær skoruðu. Ég ætlaði í boltann en hætti við og þá var ég bara of framarlega," sagði markmaðurinn.

Rakel Hönnudóttir fór af velli í hálfleik eftir að hafa spilað vel sem hægri bakvörður. „Auðvitað eru þetta vonbrigði fyrir okkur. Við vorum að spila nokkuð vel og þetta var bara ágætt hjá okkur. Við fengum hálffæri sem við hefðum getað nýtt betur," sagði Rakel sem kann ágætlega við sig í „nýju" stöðunni.

„Þetta er ágætt, þetta er fjórði leikurinn sem ég spila þarna svo ég er ekkert rosalega reynd. En þetta voru ekki sterkustu andstæðingarnir sem ég hef mætt."

Sif Atladóttir fannst íslenska liðið spila mjög vel. „Markmaður þeirra varði nokkrum sinnum frábærlega. Það vantaði herslumuninn hjá okkur og þetta er alveg ógeðslega leiðinlegt. En svona er fótboltinn. Stuðningur áhorfenda var frábær líka. Þetta er mjög sárt en við sýndum að við eigum heima þarna á meðal þeirra bestu. Það eru ekki allir sem standa svona vel í Frökkunum," sagði Sif.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×