Körfubolti

KR og Keflavík geta komist áfram í kvöld

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr leik KR og ÍR á dögunum sem Vesturbæingar unnu örugglega. Mynd/Stefán
Úr leik KR og ÍR á dögunum sem Vesturbæingar unnu örugglega. Mynd/Stefán

Keflavík og KR geta í kvöld komist í undanúrslitaleikina um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Tvo sigra þarf í einvíginu í átta liða úrslitum.

KR heimsækir ÍR í Seljaskóla í dag en leikurinn verður klukkan 17. Hann verður í beinni á Stöð 2 Sport. KR vann fyrsta leikinn á heimavelli með miklu öryggi.

Klukkan 19:15 mætast svo Tindastóll og Keflavík á Sauðárkróki og geta Keflvíkingar sent heimamenn í sumarfrí með sigri. Ef ÍR eða Tindastóll vinna í dag fá þau oddaleik á Skírdag.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×