Guðjón Skúlason: Við vorum okkur bara til skammar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. apríl 2010 22:14 Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Daníel
Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, var mjög ósáttur með leik sinna manna eftir 36 stiga tap á heimavelli á móti Snæfelli í hreinum úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. „Við vorum okkur bara til skammar. Þetta var lélegasta vörn sem ég hef liðið mitt spila í allan vetur. Við leyfðum þeim að gera allt. Þeir fengu að keyra upp að körfu, skjóta og frákasta. Þegar svoleiðis er þá bara töpum við. Við verðum bara að biðjast afsökunar á okkar frammistöðu hér í dag," sagði Guðjón. Keflavík byrjaði leikinn skelfilega og var komið 20 stigum undir eftir aðeins fimm mínútna leik. „Ég veit ekki hvað var að hjá okkur og hvort við værum yfir spenntir eða ekki nógu spenntir. Við náðum aldrei neinum tengslum við þennan leik. Við vorum hræðilega lélegir í öllu. Við gerðum allt illa sem kemur að því að spila körfubolta," sagði GUðjón. „Það agalegt að spila svona illa á heimavelli fyrir framan fullt af fólki sem styður okkur og var komið til að sjá okkur gera betur. Þetta var hræðilega lélegt og við áttum ekki skilið að vinna," sagði Guðjón. „Maður er svekktur núna en auðvitað er gott að komast svona langt. Maður vildi að sjálfsögðu vinna þegar maður var kominn í tækifæri til þess. Við áttum alla möguleika á því að vinna þetta en við klúðruðum því sjálfir.Við vorum ekki að láta þá hafa neitt fyrir þessu. Við leyfðum þeim að komast 20 og eitthvað stigum yfir fyrir hálfleik og það er bara hræðilegt," sagði GUðjón að lokum.
Dominos-deild karla Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Golf Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM Handbolti Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Íslenski boltinn Rekinn án skýringa og ætlar í mál Handbolti Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Íslenski boltinn Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Íslenski boltinn Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Enski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tókst á við Barcelona Mannleg mistök innifalin og karfan góð og gild Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Sjáðu lygilega körfu Kára sem fékk bara 0,4 sekúndur Valur - Keflavík 79-78 | Sturluð sigurkarfa Kára Tindastóll - ÍR 125-87 | Fyrstir inn í undanúrslit Elvar og Martin í miklu stuði Uppgjör: Stjarnan - KR 104-80 | Stjarnan setti KR á grillið í seinni hálfleik Hilmar Smári: Mjög stoltur af mínum mönnum „Allir að tikka inn og vörnin var bara framúrskarandi“ Hamar/Þór með stórsigur í fyrsta úrslitaleiknum Uppgjörið: Grindavík - Njarðvík 2-1 | Deildarmeistararnir taka forystuna í einvíginu „Galið“ að Stjörnumenn spili sig sem fórnarlömb Sonurinn sendi á pabbann fyrir sögulega körfu Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Grindavík sópaði Val í sumarfrí KR - Keflavík 94-80 | Thomas tók yfir í fjórða leikhluta Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Uppgjörið:Njarðvík - Tindastóll 88-87| Dramatískar lokasekúndur þegar Njarðvík sópaði Tindastól Vildu alls ekki fara í sumarfrí en Haukar höfðu betur Martin úr leik í Meistaradeildinni Tryggvi á leið í úrslitaleik annað árið í röð Dallas Mavericks segja ekkert til í ásökunum þjálfara Lakers Finnur Freyr komst loksins fram úr Friðriki Inga Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Uppgjörið:Keflavík - Valur 82-87| Valsmenn jafna einvígið og hrifsa til baka heimavöllinn Uppgjörið: ÍR - Tindastóll 90-98 | Stólarnir stigu stórt skref í átt að undanúrslitum Shaq er að byrja með nýja troðsludeild Keflavíkurstrákarnir urðu Scania-meistarar og áttu Scania-kónginn Þórir: Við lærðum bara af fyrsta leiknum Sjá meira