Formúla 1

Hamilton: Ekki rétti tíminn fyrir sumarfrí

Lewis Hamilton varð að hætta keppni í mótinu í Ungverjalandi vegna bilunnar í McLaren bílnum.
Lewis Hamilton varð að hætta keppni í mótinu í Ungverjalandi vegna bilunnar í McLaren bílnum. Mynd: Getty Images

Formúlu 1 lið fá kærkomið tveggna vikna frí í ágúst, þar sem bækistöðum liðanna verður meira og minna lokað. Lewis Hamilton er þó ekki hrifinn af frí á þessum tíma, sérstaklega ekki í ljósi þess að bíll hans bilaði um síðustu helgi.

"Vissulega er áreiðanleiki bílsins atriði, en það er ekkert sem ég get gert. Ég þarf bara að fókusera á það sem ég get gert", sagði Hamilton í frétt á autosport.com.

Hann telur Red Bull í betri stöðu, þar sem liðið var í fluggír um helgina og mæta með sama bíl á Spa brautina í Belgíu í næsta mót.

"Það er ekkert sem ég get gert. Öllu loka. Red Bull fer í frí í góðri stöðu og þeirra bíll verður sá sami, en við myndum vilja bæta okkar, en getum það ekki."

"Ef Red Bull hefði lokið öllum mótum sem þeir hafa keppt í, þá væru þeir langt á undan. Þeir hafa lent í bilunum og gert mistök og við höfum nýtt okkur það. Við verðum að fá eins mörg stig og við mögulega getum og vonum að aðrir lendi í meiri vandamálum en við."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×