Formúla 1

Alonso: Erum með í titilbaráttunni

Michael Schumacher, Fernando Alonso og Sebastian Vettel. Allir stefndu þeir á titilinn í uphafi ársins, en McLaren ökumenn leiða meistaramótið.
Michael Schumacher, Fernando Alonso og Sebastian Vettel. Allir stefndu þeir á titilinn í uphafi ársins, en McLaren ökumenn leiða meistaramótið. Mynd: Getty Images
Spánverjinn Fernando Alonso telur að Ferrari sé enn inn í myndinni varðandi meistaraslaginn í Formúlu 1, jafnvel þó hann hafi aðeins unnið einn sigur á keppnistímabilinu. Hann vann fyrsta mót ársins. Alonso segir í frétt á vefsíðu Ferrari, sem er birt á autosport.com að Ferari verði með fjölda nýjunga í bílnum, sem bæta muni eiginleika bílsins og tiltekur þá sérstaklega endurbætur á bílnum fyrir Silverstone og Hockenheim mótin sem eru í júlí. Þá blæs hann á umræða um að Ferrari sé ekki lengur í titillslagnum, en McLaren er í efsta sæti í keppni bílasmiða og Lewis Hamilton í keppni ökumanna. "Ég get ekki skilið að hægt sé að segja það. Tímabilið er ekki hálfnað og eftir næsta mót í Valencia, þá verða enn tíu mót eftir. Ég tel að úrslitin ráðist í lokamótinu í Abu Dhabi í nóvemeber. Það er mikið eftir og aðstæður geta breyst hratt", sagði Alonso um málið. Honum gekk illa í Tyrklandi á dögunum, en varð í þriðja sæti á eftir McLaren ökumönnunum á sunnudaginn og Alonso telur að gangur máli í Tyrklandi hafi bara verið ólán af ýmsum orsökum. "Aðstæður voru eðlilegar í Montreal, Mónakó, Melbourne og Sakhir og á öllum öðrum mótssvæðum þar sem við börðumst um verðlaunasæti. Kannski hafa úrslitin ekki endurspeglað raunverulega möguleika okkar, en það sama heftur hent hjá öllum liðum." "Það hafa alskonar atriði komið upp í fyrstu átta mótum ársins. Mistök, bilanir og óheppni, en við erum samt með í titilbaráttunni. Það sama má segja um McLaren og Red Bull sem hafa tapað stigum á ýmsan hátt; " sagði Alonso.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×