Íslenski boltinn

Fjölnir tók fyrsta titil ársins 2011

Elvar Geir Magnússon skrifar
Í Futsal er notaður sérstakur bolti sem er minni í sniðum en sá sem er notaður utanhúss en er þyngri og skoppar síður. Hér er Fjölnismaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson í úrslitaleiknum í gær.
Í Futsal er notaður sérstakur bolti sem er minni í sniðum en sá sem er notaður utanhúss en er þyngri og skoppar síður. Hér er Fjölnismaðurinn Kristinn Freyr Sigurðsson í úrslitaleiknum í gær. Fréttablaðið/Vilhelm

Úrslitakeppnin í Íslandsmótinu í innanhússfótbolta, Futsal, fór fram um helgina. Keppnin var haldin fyrr en undanfarin ár vegna þátttöku landsliðsins í Evrópu­keppninni í janúar. Því kom upp sú sérstaka staða að meistarar fyrir árið 2011 voru krýndir á árinu 2010.

Fjölnir úr Grafarvogi vann Íslandsmeistaratitilinn með því að leggja Víking Ólafsvík í úrslitaleik sem fram fór í íþróttahúsinu Álftanesi 3-2. Eftir að hafa lent undir 2-1 sneru Fjölnismenn blaðinu við í miklum spennuleik. Ólafsvíkingar voru hársbreidd frá því að jafna en þá átti liðið meðal annars skot í stöngina.

Ungt lið Fjölnis stóð því uppi sem meistari en þjálfarinn Ásmundur Arnarsson segir að þetta mót sé skemmtilegt krydd í veturinn. „Við fáum engan tíma til að æfa þetta Futsal en við brjótum aðeins vetur­inn upp með því að spila þessa leiki. Menn eru vaxandi í þessu eftir því sem þeir spila þetta oftar. Mér finnst þetta skemmtilegt mót og um að gera að nota þennan tíma, nóvember og desember, til að hafa svona keppni," sagði Ásmundur eftir úrslitaleikinn.

Mörg skemmtileg tilþrif sáust á þessu Íslandsmóti í Futsal og var aldursdreifing hjá liðunum mikil. Nokkrar gamlar kempur létu til sín taka og má þar meðal annars nefna Zoran Daníel Ljubicic sem lék með Keflavík á mótinu og Sigur­stein Gíslason sem tók fram skóna og lék með Leikni.

Fjölnir lagði Grundarfjörð í átta liða úrslitum á föstudag og vann sér svo inn sæti í úrslitaleiknum með því að leggja Keflavík á laugardag. „Það var mikið fjör og spenna í þessum leikjum í úrslitakeppninni og þetta er bara gaman," sagði Ásmundur. Reglurnar í Futsal eru frábrugðnar gamla innanhússboltanum en Ásmundur segir að stærsti munurinn sé sjálfur knötturinn. Notast er við sérstakan Futsal-bolta sem er minni og með aðra eiginleika en hefðbundinn bolti.

„Það er erfitt að taka neglurnar sem maður tók í gamla daga. Þessi bolti býður upp á góðan samleik og menn eru að vinna fjórir á móti fjórum. Það er alveg hægt að nýta þetta í útiboltanum í rólegheitunum. Það er hægt að græða mikið á þessu, þjálfun í snertingu við boltann, varnar­vinnu og samvinnu milli leikmanna," sagði Ásmundur.

Það má segja að þarna hafi fyrsta meistaratitli næsta árs verið úthlutað en Fjölnismenn fá titilinn Íslandsmeistarar í Futsal 2011. Þeir fá því þátttökurétt í Evrópu­keppni meistaraliða á næsta ári. „Við eigum eftir að ræða það innan­búðar hvernig við höndlum það. Við sjáum bara til, það á eftir að skoða kostnaðarhlið og annað," sagði Ásmundur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×