Íslenski boltinn

FH-ingar bikarmeistarar í annað skipti eftir 4-0 stórsigur á KR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
FH-ingar fagna bikarmeistaratitlinum í kvöld.
FH-ingar fagna bikarmeistaratitlinum í kvöld. Mynd/Daníel

FH-ingar unnu 4-0 stórsigur á KR í úrslitaleik VISA-bikars karla sem er nýlokið á Laugardalsvellinum. Þetta er í annað skiptið sem FH-ingar vinna bikarinn en þeir unnu hann einnig fyrir þremur árum.

Matthías Vilhjálmsson kom FH í 2-0 með tveimur vítaspyrnum með sex mínútna millibili í fyrri hálfleik, Atli Viðar Björnsson skoraði þriðja markið sextán mínútum fyrir leikslok og Atli Guðnason innsiglaði síðan sigurinn rétt fyrir leikslok.

KR-ingar byrjuðu leikinn vel og fengu fyrstu hættulegu færin. Fyrst fékk Björgólfur Takefusa aukaspyrnu fyrir framan vítateiginn á 2. mínútu sem endaði í varnarveggnum og svo átti Baldur Sigurðsson hættulegt skot rétt framhjá eftir fyrirgjöf frá Guðmundi Reyni Gunnarssyni á 6. mínútu.

FH-ingar sóttu í sig veðrið eftir því sem leið á hálfleikinn og fengu síðan algjört dauðafæri þegar Atli Viðar Björnsson slapp einn í gegn á 31.mínútu en lét Lars Moldskred verja frá sér.

Fjórum mínútum síðar fengu FH-ingar síðan víti þegar Skúli Jón Friðgeirsson braut klaufalega á Atla Guðnasyni sem hafði fengið langa sendingu inn fyrir vörnina. Erlendur Eiríksson hugsaði sig vel um en benti svo á punktinn. Matthías Vilhjálmsson skoraði úr vítinu og kom FH í 1-0.

Það liðu ekki nema sex mínútur þegar Erlendur Eiríksson var búinn að benda aftur á punktinn. Nú fékk hann góða aðstoð frá aðstoðardómaranum Sigurði Óla Þórleifssyni sem veifaði á að Guðmundur Reynir Gunnarsson hefði stoppað fyrirgjöf Ólafs Páls Snorrasonar með hendinni.

Þessi dómur var strangur en líklega réttur. Matthías Vilhjálmsson steig aftur fram á vítapunktinn og kom FH af öryggi í 2-0.

KR-ingar voru nálægt því að minnka muninn í lok hálfleiksins þegar Tommy Nielsen bjargaði þrumuskoti Kjartans Henrys Finnbogasonar á marklínu.

Hálfleiksræða Rúnars Kristinssonar virtist ekki fara vel í KR-liðið því FH-ingar tóku strax völdinn í seinni hálfleik og voru allan tímann líklegri til að bæta við en KR-ingar að minnka muninn.

Þriðja mark FH-liðsins kom þó ekki fyrr en sextán mínútum fyrir leikslok eftir að Rúnar var búinn að fækka í vörninni hjá KR. Atli Viðar fékk þá boltann inn í teignum eftir að sending Ólafs Páls Snorrasonar fór af varnarmanni og datt fyrir hann.

Atli Guðnason batt síðan endahnútinn með fjórða markinu á 86. mínútu eftir samleik hans og Ólafs Páls Snorrasonar á milli kantanna. Ólafur Páll gaf loks á Atli inn fyrir vörnina og Atli skoraði af öryggi.

Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins var með beina lýsingu frá úrslitaleik FH og KR VISA-bikar karla sem fram fer á Laugardalsvellinum.

Smelltu hér til að opna Boltavaktina og lesa lýsingu leiksins: FH - KR


















Fleiri fréttir

Sjá meira


×