Ægir Þór fyrstur Íslendinga til að ná 30-10 tvennu í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2010 12:30 Ægir Þór Steinarsson, 18 ára leikstjórnandi Fjölnisliðsins. Mynd/Valli
Ægir Þór Steinarsson, 18 ára leikstjórnandi Fjölnisliðsins, átti frábæran leik með liði sínu í óvæntum 111-109 sigri á Grindavík í framlengdum leik í Röstinni í Grindavík í Iceland Express deild karla í körfubolta í gærkvöldi. Ægir Þór var með 33 stig og 13 stoðsendingar í leiknum og stýrði hinu unga liði til mikilvægs sigurs í neðri hluta deildarinnar. Ægir var auk þess með 6 fráköst og 3 stolna bolta og fékk 35 í framlagi fyrir frammistöðu sína. Þrettánda stoðsending Ægis í leiknum var þegar Tómas Heiðar Tómasson skoraði sigurkörfu leiksins á lokasekúndunum en enginn leikmaður í deildinni hefur náð að gefa fleiri stoðsendingar i einum leik á þessu tímabili. Ægir Þór er jafnframt aðeins þriðji leikmaður Iceland Express deild karla sem nær 30-10 tvennu í stigum og stoðsendingum í vetur og sá fyrsti af íslenskum leikmönnum deildarinnar. Stjörnumaðurinn Justin Shouse var með 38 stig og 11 stoðsendingar í tapleik á móti Tindastól og KR-ingurinn Semaj Inge var með 30 stig og 11 stoðsendingar í sigri á móti Tindastól. Ægir Þór lék allar 45 mínúturnar í leiknum en hann hitti úr 12 af 27 skotum sínum þar af 6 af 11 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.
Dominos-deild karla Mest lesið Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Enski boltinn Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys Handbolti „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Körfubolti Járnkona sundsins kveður Sport Hljóp maraþonhlaup á hverjum degi í heilt ár Sport „Megum ekki við fleiri meiðslum í bili“ Sport Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Enski boltinn Æskuheimili Steve Kerr brann til kaldra kola Körfubolti Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM Handbolti „Fínt eins og það er, en rosalega margt sem við getum enn gert betur“ Körfubolti Fleiri fréttir Æskuheimili Steve Kerr brann til kaldra kola Uppgjörið: Keflavík - Höttur 112-98 | Fyrsti sigur Keflvíkinga á árinu „Fínt eins og það er, en rosalega margt sem við getum enn gert betur“ „Ég var að sinna hlutum sem eru mikilvægari en körfubolti“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 75-81 | Vítaklúður og vonbrigði í Forsetahöllinni Uppgjörið: Grindavík-Haukar 79-71 | Torsóttur skyldusigur Grindvíkinga Uppgjörið: Tindastóll-ÍR 98-88 | Stólarnir á toppinn Fresta NBA leik vegna eldanna í Los Angeles Stóðu í Tyrkjunum en allt hrundi í lokin Cavs vann uppgjör toppliðanna í NBA Kane þrumaði yfir samherjunum: „Hvar er helvítis hjartað ykkar og kjarkurinn?“ Stalst í síma liðsfélaga og tók sjötíu sjálfur „Ég mun vera með þetta út ferilinn minn, bara fyrir þig“ Uppgjör og viðtöl: Þór Ak.-Keflavík 109-87 | Þórskonur áfram í stuði á heimavelli „Vonandi náum við að stækka hópinn og gera magnaða hluti í vor” Fóru í leikinn Hvar spilar hann? Skoraði ótrúlega sigurkörfu fyrir aftan miðju Öskraði í miðju vítaskoti „Maður fær bara hnút í magann að koma hingað inn“ „Kannski bara ágætt að tapa einum og ná jarðtengingu“ Uppgjörið: Valur - Tindastóll 73-64 | Valskonur kældu Stólana niður Uppgjör og viðtöl: Njarðvík - Haukar 75-82 | Haukakonur juku forskotið „Við lokuðum á allt sem þær reyndu að koma með í endann“ Sjötíu daga bið lengist enn eftir frábæra endurkomu Hamars/Þórs Misstu Kolbrúnu meidda af velli en tókst samt að enda taphrinuna Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Mætti í körfuboltakjól á hliðarlínuna Medina með rosatölur þegar Hamar vann toppliðið Körfuboltakvöld: Geta Tindastólstelpurnar orðið Íslandsmeistarar? Sjá meira