Körfubolti

Stórleikur í körfunni í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Vikan byrjar með látum í Reykjanesbæ því það verður sannkallaður stórleikur í Sláturhúsinu í Keflavík í kvöld.

Þá taka Keflvíkingar á móti Njarðvík í átta liða úrslitum Subway-bikarsins. Leikurinn hefst klukkan 19.15.

ÍR, Snæfell og Grindavík hafa þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum keppninnar en dregið verður í undanúrslit á miðvikudag.

Þeir sem komast ekki á leikinn geta séð hann í beinni útsendingu á sporttv.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×