Formúla 1

Rússar fagna nýliðanum í Formúlu 1

Robert Kubica og Vitaly Petrov aka báðir hjá Renault.
Robert Kubica og Vitaly Petrov aka báðir hjá Renault. Mynd: Getty Images

Vitaly Petrov frá Rússlandi keyrði í sínu fyrsta Formúlu 1 móti í Barein á dögunum og stökk úr sautjánda sæti á ráslínu í það ellefta. En svo bilaði bíllinn eftir góða spretti.

"Ég var mjög ánægður með helgina, nema lokastöðu mína. Ég gerði mistök í tímatökunni sem þýddi að ég færðist niður listann. Bíllinn var mjög góður á keppnisdag og ég er því bjartsýnn fyrir næsta mót", sagði Petrov.

"Það var gott að ræsa af stað í fyrsta Formúlu 1 mótið og að komast framúr keppinautum eftir stöðubaráttu. Ég ætla að komast nær tíu fremstu í næsta móti, en ég undirbý mig samt  alltaf af yfirvegun."

Rússar hafa sýnt þátttöku Petrovs mikinn áhuga.

"Ég hef fengið frábæran stuðning í Rússlandi, þó íþróttin sé nýmæli sem slíkt. Fólk er að læra inn á íþróttina smám saman. En það er mikil spenna og ég fengið mikið af jákvæðum skilaboðum. Það skapar þó ekki neina auka pressu á mig."

Næsta verkefni Petrovs er að kanna brautina í Ástralíu sem verður ekin um næstu helgi.

"Ég þarf að skoða beygjurnar, snerta malbikið og labba hring um brautina.

Mér finnst ég rétt stemmdur og mun gera mitt besta og sjá hvað gerist", sagði Petrov.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×