Körfubolti

Páll: Við höfum fengið allskonar gagnrýni síðustu daga

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Páll Kolbeinsson, þjálfari KR.
Páll Kolbeinsson, þjálfari KR. Mynd/Vilhelm

KR-ingar voru í miklu stuði allir sem einn í 19 stiga sigri liðins á Snæfelli í Stykkishólmi í kvöld. í öðrum leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla. Þjálfarinn Páll Kolbeinsson var líka ánægður með sína menn.

„Andleysið í síðasta leik var fyrir neðan allar hellur. Það hefur varla sést annað eins í KR-heimilinu í langan tíma. Menn voru ákveðnir, vildu koma til baka og sýna hvað í þeim býr. Við höfum fengið allskonar gagnrýni síðustu daga, bæði frá okkar fólki og öðrum. Við erum að svara því með þessum sigri," sagði Páll Kolbeinsson, þjálfari KR.

„Það er frábært að koma hingað í Hólminn og vinna þá í fráköstunum. Við töpuðum frákastabaráttunni heima í fyrsta leiknum en menn komu mjög velstemmdir í þennan leik," sagði Páll en næsti leikur er á heimavelli KR á laugardaginn.

„Nú er bara serían komin á byrjunarreit aftur og ég held bara að við séum tilbúnari núna en þegar viðkomum til leiks í fyrsta leiknum. Við erum reynslunni ríkari," sagði Páll að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×