Körfubolti

Meistararnir hófu titilvörnina á sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Ólafur Jónsson skoraði nítján stig fyrir Snæfell í kvöld.
Jón Ólafur Jónsson skoraði nítján stig fyrir Snæfell í kvöld.

Íslandsmeistarar Snæfells unnu í kvöld sigur á Fjölni í fyrstu umferð Iceland-Express deildar karla sem lauk með þremur leikjum í kvöld.

Snæfellingar unnu fimm stiga sigur í Grafarvoginum í kvöld, 102-97. Mikið var skorað í fyrsta leikhluta er gestirnir komust í dágóða forystu, 43-31.

En þeir skoruðu aðeins ellefu stig í öðrum leikhluta og Fjölnismenn voru með forystu þegar flautað var til hálfleiks, 57-54.

Það voru miklar sveiflur í fjórða leikhluta. Fjölnir byrjaði á því að komast átta stigum yfir, 88-80, en þá skoruðu Snæfellingar fjórtán stig í röð og létu ekki forystuna af hendi eftir það.

Nánar verður fjallað um leikinn á Vísi í kvöld.

Haukar unnu góðan útisigur á Hamar í Hveragerði, 89-82, og munaði mestu um öflugan þriðja leikhluta er Haukar byggðu upp forskot sem dugði að lokum til sigurs.

Þá unnu Grindvíkingar öruggan sigur á Njarðvík, 84-68. Sigurinn var enn öruggari en lokatölurnar gefa til kynna þar sem Grindavík var með 29 stiga forystu eftir þrjá leikhluta, 79-50.

Úrslit kvöldsins:

Fjölnir - Snæfell 97-102



Stig Fjölnis: Ben Stywall 25/11 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 25/4 fráköst/11 stoðsendingar, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 19/4 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 12, Jón Sverrisson 7, Trausti Eiríksson 4, Arnþór Freyr Guðmundsson 3/5 fráköst, Sindri Kárason 2.

Stig Snæfells: Ryan Amaroso 31/13 fráköst, Jón Ólafur Jónsson 19/7 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 18, Sean Burton 12/7 stoðsendingar, Emil Þór Jóhannsson 10, Lauris Mizis 4/4 fráköst, Egill Egilsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 3, Atli Rafn Hreinsson 2.

Njarðvík - Grindavík 68-84

Stig Njarðvíkur: Antonio Houston 13/4 fráköst, Egill Jónasson 12/6 fráköst, Guðmundur Jónsson 12, Jóhann Árni Ólafsson 11, Lárus Jónsson 7, Óli Ragnar Alexandersson 4, Kristján Rúnar Sigurðsson 3, Friðrik E. Stefánsson 2/4 fráköst, Páll Kristinsson 2/8 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 2.

Stig Grindavíkur: Andre Smith 25/9 fráköst/10 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 15/6 fráköst/3 varin skot, Ólafur Ólafsson 13/4 fráköst, Guðlaugur Eyjólfsson 11, Ryan Pettinella 8/5 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 5/5 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 5/4 fráköst, Þorleifur Ólafsson 20.

Hamar - Haukar 82-89

Stig Hamars: Andre Dabney 28/6 fráköst/7 stolnir, Darri Hilmarsson 17/4 fráköst, Ellert Arnarson 17/6 stoðsendingar, Svavar Pall Palsson 10/9 fráköst, Ragnar Á. Nathanaelsson 4/11 fráköst/3 varin skot, Kjartan Kárason 3, Nerijus Taraskus 3.



Stig Hauk
a: Gerald Robinson 29/14 fráköst, Semaj Inge 22/9 fráköst/6 stoðsendingar, Davíð Páll Hermannsson 11, Örn Sigurðarson 9, Sævar Ingi Haraldsson 6/6 fráköst/9 stoðsendingar, Óskar Ingi Magnússon 6, Haukur Óskarsson 3, Sveinn Ómar Sveinsson 3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×