Körfubolti

Pistill Jóhannesar Kristbjörnssonar: Áhyggjuhrukkurnar hurfu fljótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nick Bradford féll vel inn í leik Njarðvíkurliðsins.
Nick Bradford féll vel inn í leik Njarðvíkurliðsins. Mynd/Daníel
Njarðvíkingurinn Jóhannes Kristbjörnsson er skemmtilegur penni og það er gaman að lesa greinar hans um leiki Njarðvíkurliðsins á heimasíðu félagsins. Jóhannes var á leik Njarðvíkur og ÍR á mánudagskvöldið og hefur í framhaldinu skilað enn einum snilldarpistlinum inn á umfn.is.

„Með tilkomu „hjáleigukanans" svokallaða, Nicks Bradford (lék áður með Keflavík), átti maður von á því að pönkararnir úr Breiðholtinu, með nýjan óreyndan þjálfara og án Eika Önundar og Svenna smörrebröd, yrðu auðveld bráð þrátt fyrir að lítill blökkumaður með upphafsstafina MJ hefði komið frá Bandaríkjunum sama morgun og leikurinn fór fram, ÍR-ingum til styrkingar," skrifar Jóhannes og bætir við:

„Þá hafði ég allnokkrar áhyggjuhrukkur yfir því frá hverjum Nick stæli sviðsljósinu, mínútunum, skotunum og búningnum. Þær hrukkur hurfu fljótt af andlitinu því allt í einu var sem Njarðvíkurliðið eins og ég þekkti það væri mætt til leiks, sóknarmegin á vellinum," segir Jóhannes í pistli sínum.

Jóhannes er einnig hræddur um að pressan sé komin á Njarðvík með tilkomu Nicks Bradford.

„Nú breytast væntingarnar úr því að segja „frábært ef okkar menn ná titli í hús í vetur" í „Allt nema allir titlar er algjört klúður". Nú grunar mig að það dugi „stúkunni" skammt að halda jöfnu fram eftir öllum leik og láta sigurinn hanga á horrimminni. Nú lifni stúkan ekki við nema tilþrifin séu því flottari, langskotin því fáranlegri, vörðu skotin komi alla leið upp í stúku og troðslurnar séu yfir 2 metra menn," segir Jóhannes en allan pistilinn hans má finna hér og það verður enginn svikinn að lesa þennan skemmtilega pistil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×