Körfubolti

Darri lánaður til Hamars

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Darri.
Darri. Fréttablaðið/Daníel
Körfuknattleiksmaðurinn öflugi Darri Hilmarsson mun ekki leika með KR næsta vetur. Hann hefur verið lánaður til Hamars í eitt ár.

„Hann vill fá að spila meira til að bæta sig enn frekar. Við skildum það sjónarmið og ákváðum því að lána hann í eitt ár. Við fáum hann svo enn sterkari til baka," sagði Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR.

Darri hefur oftar en ekki verið sjötti maður í KR-liðinu og átt margar magnaðar innkomur í liðið á síðustu tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×