Er kominn tími fyrir Tommy að skipta aftur í gamla treyjunúmerið? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2010 14:30 Tommy Johnson hefur aðeins skorað 8,8 stig í treyju númer sjö. Mynd/Stefán
Það hefur lítið gengið hjá KR-ingnum Tommy Johnson að undanförnu. Leikbann, meiðsli og hver slaki leikurinn á fætur öðrum hefur séð til þess að KR-ingar hafa lítið getað treyst á annan erlenda leikmanninn sinn. KR-ingar eru komnir 0-1 undir á móti Snæfelli eftir 18 stiga tap á móti Snæfelli, 84-102, í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar. Tommy var í byrjunarliði KR í leiknum en hitti aðeins úr 3 af 13 skotum sínum á þeim 30 mínútum sem hann spilaði. Það er eins og ekkert falli með Tommy þessa dagana og ástæðan gæti kannski verið tengd hreinni hjátrú í kringum númerið á keppnistreyjunni hans. Tommy Johnson var í góðum gír framan af tímabili þegar hann lék í treyju númer 15 en hann var í því númeri fyrstu fjóra mánuði tímabilsins. Tommy lék alls 14 deildarleiki í treyju númer 15 en hann skipti yfir í treyju númer 12 þegar Pavel Ermolinskij kom til liðsins og breytti svo yfir í treyju númer 7 þremur leikjum síðar. Það er líka hægt að álykta sem svo að Tommy og Pavel nái ekki vel saman enda markar breytingin á hans leik einnig komu Pavels til KR. Hver sem ástæðan er þá er mikill munur á framlagi Tommy síðan að gaf Pavel eftir treyju númer 15. Tommy var að skora 19,2 stig að meðaltali og hitta úr 39,7 prósent þriggja stiga skota sinna í treyju númer 15. Tommy var þá að skora 3,7 þrista að meðaltali í leik. Tölurnar hans fóru niður í 15,7 stig í leik og 22,9 prósent þriggja stiga skotnýtingu í treyju númer tólf og hann hefur skilað enn minna í sex leikjum í treyju númer 7. Tommy er aðeins með 8,8 stig að meðaltali og 22,9 prósent þriggja stiga skotnýtingu í sex leikjum sínum í sjöunni. Framlagið hans í þessum leikjum hefur farið úr 15,4 í treyju fimmtán, í 10,7 í treyju tólf og loks niður í 5,3 framlagsstig í treyju sjö.Tölfræði Tommy Johnson í deild og úrslitakeppniTommy í treyju fimmtán Leikir: 14 Stig í leik: 19,2 Skotnýting: 40,1% 3ja stiga körfur í leik: 3,7 3ja stiga skotnýting: 39,7% Víti fengin í leik: 5,0 Vítanýting: 81,7% Framlag í leik: 15,4Tommy í treyju tólf Leikir: 3 Stig í leik: 15,7 Skotnýting: 25,9% 3ja stiga körfur í leik: 2,7 3ja stiga skotnýting: 22,9% Víti fengin í leik: 3,7 Vítanýting: 100% Framlag í leik: 10,7Tommy í treyju sjö Leikir: 6 Stig í leik: 8,8 Skotnýting: 28,3% 3ja stiga körfur í leik: 1,3 3ja stiga skotnýting: 22,9% Víti fengin í leik: 2,0 Vítanýting: 91,7% Framlag í leik: 5,3
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira