Körfubolti

Keflvíkingar unnu heimasigur á Njarðvík í jöfnum leik

Elvar Geir Magnússon skrifar
Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson.
Keflvíkingurinn Gunnar Einarsson.

Keflvíkingar unnu granna sína í Njarðvík í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Iceland Express-deildarinnar.

Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en liðin mætast í Njarðvík á fimmtudag.

Það lið sem vinnur þrjá sigra kemst í úrslit.

Keflavík-Njarðvík 89-78 (22-20, 22-22, 17-23, 28-13)

Keflavík: Draelon Burns 26/5 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 21/7 fráköst/7 stoðsendingar/6 stolnir, Gunnar Einarsson 15, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 11/9 fráköst, Uruele Igbavboa 10/7 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 2, Jón Nordal Hafsteinsson 2, Sverrir Þór Sverrisson 2.

Njarðvík: Nick Bradford 27/5 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 15/8 fráköst, Magnús Þór Gunnarsson 11/7 fráköst, Guðmundur Jónsson 8, Friðrik E. Stefánsson 5/8 fráköst, Rúnar Ingi Erlingsson 4, Páll Kristinsson 4/6 fráköst, Kristján Rúnar Sigurðsson 2, Egill Jónasson 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×