Íslenski boltinn

Andri Júlíusson hættur hjá Skagamönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andri Júlíusson.
Andri Júlíusson. Mynd/Heimasíða ÍA
Andri Júlíusson og Knattspyrnufélag ÍA komust í dag að samkomulagi um að ljúka samningi Andra við félagið en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld.

Andri er 25 ára framherji og uppalinn hjá félaginu þar sem hann steig sín fyrstu spor í meistaraflokki sumarið 2005. Andri var lánaður til KA seinni hluta sumars 2008 en hefur skorað 16 mörk í 37 leikjum með ÍA í 1. deildinni síðustu tvö sumar.

„Ákvörðunin var langt í frá auðvelt fyrir báða aðila enda er Andri Skagamaður í húð og hár og hefur á hverju ári, síðan hann hóf að leika í meistaraflokki, verið einn af markahæstumönnum liðsins," segir í fréttinni á síðunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×