Fótbolti

Breiðablik vann góðan sigur á Akureyri

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan sigur í kvöld
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan sigur í kvöld Mynd/Anton
Þrír leikir fóru fram í dag í A-deild Lengjubikars karla. Í Boganum á Akureyri var mikill markaleikur þegar Þór Ak. og Keflavík mættust. Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði þrennu fyrir Keflavík en það dugði ekki til þar sem Þór Ak. fór með sigur af hólmi, 4-3.

KA tók á móti Íslandsmeisturum Breiðabliks þar sem gestirnir höfðu öruggan 0-3 sigur. Í kvöld mættust svo Leiknir og Fram þar sem Leiknir vann góðan sigur 2-1. Ólafur Hrannar Kristjánsson skoraði sigurmark Leiknir þegar skammt var eftir af leiknum.

Úrslit dagsins í A-deild karla í Lengjubikarnum:

R1: Þór Ak. 4-3 Keflavík

1-0 Jóhann Helgi Hannesson

1-1 Magnús Sverrir Þorsteinsson

1-2 Magnús Sverirr Þorsteinsson

2-2 David Disztl

3-2 Þorsteinn Ingason

3-3 Magnús Sverrir Þorsteinsson

4-3 Sigurður Marinó Kristjánsson

R1: KA 0-3 Breiðablik

0-1 Haukur Baldvinsson

0-2 Rafn Andri Haraldsson

0-3 Guðmundur Kristjánsson

R2: Leiknir 2-1 Fram:

0-1 Halldór Hermann Jónsson ('26)

1-1 Kjartan Andri Baldvinsson ('75)

2-1 Ólafur Hrannar Kristjánsson ('86)

Markaskorarar eru fengnir frá Fotbolti.net




Fleiri fréttir

Sjá meira


×