Fótbolti

Haraldur kallaður til Kýpur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Haraldur Björnsson í leik með íslenska U-21 landsliðinu í fyrra.
Haraldur Björnsson í leik með íslenska U-21 landsliðinu í fyrra. Nordic Photos / Bongarts
Haraldur Björnsson, markvörður íslenska U-21 landsliðsins, hefur verið kallaður í A-landsliðið vegna meiðsla þeirra Gunnleifs Gunnleifssonar og Ingvars Þórs Kale.

Haraldur lék með U-21 liðinu gegn Úkraínu í gærkvöldi. Liðið heldur næst til Englands en þar spila strákarnir á mánudagskvöldið.

Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur nú neyðst til að kalla á Harald þar sem að Gunnleifur er meiddur í baki og Ingvar Þór er að glíma við ökklameiðsli.

Stefán Logi Magnússon mun standa í íslenska markinu í leiknum gegn Kýpverjum á morgun en nú er verið að vinna að því hörðum höndum að koma Haraldi á áfangastað sem allra fyrst en líklegt er að hann komist til Kýpur í fyrramálið.

Íslenska landsliðið æfir nú síðdegis og getur aðeins einn markvörður - Stefán Logi - tekið þátt í henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×