Íslenski boltinn

Grétar Rafn spilar ekki gegn Kýpur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Grétar Rafn Steinsson.
Grétar Rafn Steinsson.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu varð fyrir áfalli í dag þegar Grétar Rafn Steinsson varð að draga sig úr leikmannahópnum sem mætir Kýpur.

Grétar Rafn virðist hafa meiðst í leiknum gegn Man. Utd í gær og getur því ekki spilað.

Í hans stað hefur Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari valið Blikann Arnór Svein Aðalsteinsson.

Leikur Kýpur og Íslands fer fram þann 26. mars næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×