Körfubolti

Pavel: Þetta verður ekki svona auðvelt í næsta leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þeir eiga eftir að mæta dýrvitlausir í næsta leik," sagði Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR-inga, eftir sigurinn í kvöld, en Bikarmeistararnir unnu fyrstu orrustuna um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland-Express deild karla í körfubolta.

„Þegar maður er komin í úrslitaeinvígð þá býst maður við spennuleikjum, en ég held að pásan sem Stjarnan er að koma úr hafi verið of löng. Við erum að koma úr hörku seríu gegn Keflavík og erum í raun enn sjóðheitir".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×