Körfubolti

Hrafn: Keyrðum yfir þá í síðari hálfleik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég bjóst ekki við svona stórum sigri en ég var alveg viss um það að við myndum vinna þennan leik,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, eftir sigurinn í kvöld. KR vann Stjörnuna, 108-78, í DHL-höllinni, en þetta var fyrsti leikur liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.

 

„Við spiluðum ágætlega í fyrri hálfleik, en síðan keyrðum við upp hraðan í þeim síðari og þá var þetta aldrei spurning. Það var alveg frábært að sjá hvað bekkurinn er koma sterkur inn í þessu leik og það sýnir hvað við erum með mikla breidd,“ sagði Hrafn.

 

„Mér fannst stóru strákarnir þrír Finnur, Hreggi og Jón Orri bregðast alveg hreint ótrúlega vel við  í leiknum í kvöld og skiluðu frábæru starfi“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×