Fannar þekkir ekkert annað en að vinna úrslitaeinvígi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2011 15:15 Fannar Ólafsson í baráttunni gegn leikmönnum Keflavíkur. Mynd/Daníel
Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, er nú kominn í úrslitaeinvígi í fimmta sinn á ferlinum og í hin fjögur skiptin hefur hann unnið Íslandsmeistaratitilinn þar af tvisvar sem fyrirliði KR-liðsins á undanförnum fjórum árum. Fyrsti leikur KR og Stjörnunnar í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla er klukkan 19.15 í DHL-höllinni í kvöld og verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Fannar fór í lokaúrslitin með Keflavík 1999 og 2004 og svo með KR-liðinu 2007 og 2009. Fannar hefur alls leikið 18 leiki í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn og liðin hans hafa unnið 12 af þessum 18 leikjum. Fannar er með 10,3 stig og 6,6 fráköst að meðaltali á 23,8 mínútm í þessum leikjum sínum í úrslitaeinvígum um titilinn. Fannar tók fyrst þátt í lokaúrslitum með Keflavíkurliðinu vorið 1999. Hann var þá með 8,0 stig og 3,4 fráköst að meðaltali á 15,6 mínútum þegar Keflavík vann sigur á nágrönnum sínum úr Njarðvík í oddaleik. Fannar fór einnig með Keflavík í lokaúrslitin vorið 2004 en Keflavík vann þá 3-1 sigur á Grindavík í úrslitunum. Fannar var með 8,3 stig og 9,5 fráköst að meðaltali á 28.5 mínútum. Fannar var fyrst í hlutverki fyrirliða í úrslitunum 2007 þegar hann komst þangað með KR. KR tapaði fyrsta leiknum á móti Njarðvík en vann svo þrjá í röð og tryggði sér titilinn. Fannar var með 10,0 stig og 8,5 fráköst að meðaltali á 27,0 mínútum. Fannar var síðan síðast í lokaúrslitunum fyrir tveimur árum þegar KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á Grindavík í oddaleik. Fannar var með 14,6 stig og 6,0 fráköst að meðaltali á 25,8 mínútum. Hann hefur því hækkað meðalskor sitt í hverjum úrslitaeinvígi.
Dominos-deild karla Mest lesið Þjóðverjar busuðu fámennustu þjóð í sögu HM með rassskelli Fótbolti Ísak Bergmann trúlofaður Fótbolti „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Leik lokið: Keflavík-FH 1-2 | Fyrsti sigur FH-inga í sumar Fótbolti Uppgjör: Þór-ÍBV 1-4 | Eyjamenn með annan stórsigurinn í röð Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Handbolti Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Fleiri fréttir Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Sjá meira