Sumarið 2010 var starfræktur laxateljari í Gljúfurá í Borgarfirði. Samkvæmt honum er veiðiálagið á laxastofn árinnar 49% en mun minna á silungi.
Um árabil hefur starfsfólk Veiðimálastofnunar vaktað laxastofna Gljúfurár, en með tilkomu teljara í ánni er nú hægt að nálgast greinargóðar upplýsingar um göngu lax- og silungs.
Samkvæmt teljara gengu 550 laxar upp fyrir teljarann og veiddust 271 þeirra. Tiu laxar fengust að auki neðan laxateljara.
Athygli vekur að laxagöngur í Gljúfurá aukast samfara vatnsmagni Norðurár, og virðist forsendan fyrir góðum göngum vera sú að nægt vatn sé fyrir hendi í Norðurá, en árnar sameinast við Flóðatanga. Sé laxateljarinn borinn saman við vatnsmagn má sjá augljós tengsl þar á milli.
Athygli vekur mikil sjóbirtingsgengd í Gljúfurá eftir að veiðitíma lýkur. Í lok september og í október er talsvert að ganga af sjógengnum urriða, en sökum þess hversu seint sá fiskur gengur þá mælist veiðiálag á þann stofn aðeins 4%!
Þess má geta að samkvæmt seiðamælingum er laxastofn Gljúfurár í mjög góðu horfi.
Birt með góðfúslegu leyfi SVFR
Teljaraniðurstöður úr Gljúfurá
