Íslenski boltinn

Skagamenn töpuðu fyrstu stigunum - HK eitt á botninum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hjörtur Júlíus Hjartarson skorar jöfnunarmark Skagamanna í kvöld.
Hjörtur Júlíus Hjartarson skorar jöfnunarmark Skagamanna í kvöld. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Víkingar úr Ólafsvík urðu fyrstir til þess að taka stig af Skagamönnum í 1. deild karla í fótbolta en 4. umferðinni lauk með fjórum leikjum í kvöld. Hjörtur Júlíus Hjartarson tryggði ÍA-liðinu 1-1 jafntefli á móti Víkingi með sínu þriðja marki í sumar.

ÍR-ingar rifu sig upp eftir tvö töp í röð og unnu 3-2 sigur á Fjölnismönnum í Grafarvoginum þar sem fjögur markanna komu í fyrri hálfleiknum. Fjölnir er þar með búið að tapa tveimur leikjum í röð og fá á sig sex mörk í þeim.

HK-ingar eru nú einir á botninum með eitt stig af tólf mögulegum eftir 1-2 tap fyrir Þrótti á heimavelli. Þrír af fyrstu fjórum leikjum HK hafa verið í Kópavoginum en þeir hafa tapað þeim öllum.

Leiknismenn þurfa að bíða enn eftir fyrst sigri sumarsins eftir 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Selfossi. Þetta var þriðja jafntefli Leiknis í fjórum leikjum en það gengur ekki mikið betur hjá Selfyssingum að landa sigrinum enda aðeins búnir að vinna einn af fyrstu fjórum leikjunum sínum.

Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í dag:Grótta-BÍ/Bolungarvík 1-0

1-0 Viggó Kristjánsson (75.)

KA-Haukar 0-2

0-1 Hilmar Rafn Emilsson (13.), 0-2 Hilmar Trausti Arnarsson, víti (20.)

HK-Þróttur R. 1-2

0-1 Sveinbjörn Jónasson (14.), 0-2, Sveinbjörn Jónasson, víti (57.), 1-2 Samúel Arnar Kjartansson (86.)

Fjölnir-ÍR 2-3

0-1 Jón Gísli Ström (1.),. 0-2 Árni Freyr Guðnason (5.), 1-2 Styrmir Árnason (17.), 1-3 Árni Freyr Guðnason (36.), 2-3 Ómar Hákonarson (90.)

Leiknir R.-Selfoss 1-1

1-0 Fannar Þór Arnarsson , 1-1 Viðar Örn Kjartansson.

ÍA-Víkingur Ó. 1-1

0-1 Edin Beslija (60.), 1-1 Hjörtur Júlíus Hjartarson (69.)



Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×