Tungufljótsdeilan til lykta leidd Karl Lúðvíksson skrifar 15. júní 2011 10:41 Mynd frá Tungufljóti og Faxi í baksýn Mynd: Baldur Bragason
Á vefnum www.votnogveidi.is er þessi frétt. Fyrir skemmstu felldi Héraðsdómur Suðurlands dóm í máli Tungufljótsdeildar Veiðifélags Árnessýslu gegn hjónum úr röðum eigenda Bergsstaða, en margir veiðimenn þekkja til deilna sem þar hafa staðið um veiðirétt. Dómurinn féll Veiðifélaginum í vil og ætti þar með að linna árekstrum á bökkum Tungufljóts neðan Faxa. "Þetta er þvílíkur gleðidagur, enda er þetta mál búið að þæfast allt of lengi,“ sagði Stefán Sigurðsson sölustjóri hjá Lax-á, en félagið Tungufljót ehf, sem er í eigu Lax-ár, er leigutaki árinnar og hafa stöðugar fregnir af leiðindum borist að austan tvö síðustu sumur vegna veiða Bergsstaðamanna, sem hafa raðað sér upp á öndverðum bakka við viðskiptavini Lax-ár. Hefur á stundum verið sannkölluð spúnahríð með tilheyrandi deilum og köllum manna í millum, sem er ekki það sem menn eru að sækja í þegar haldið er út í guðs græna náttúruna til veiða. Ljóst má vera að umrætt ástand hafi ekki verið til að auðvelda markaðsetningu Lax-ár á svæðinu sem fyrirtækið hefur byggt upp og gert að miklu laxveiðisvæði með sleppingum gönguseiða. Meira um þetta mál hér:https://www.votnogveidi.is/frettir/almennt/nr/3855Birt með góðfúslegu leyfi Vötn og Veiði
Stangveiði Mest lesið Rjúpusnafsinn ómissandi hjá mörgum Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði Róleg veiði en margir við bakkann Veiði Veiðisýning á Egilsstöðum 3-6. nóvember Veiði Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns Veiði Aðeins ein helgi eftir til rjúpnaveiða Veiði Fæðisskylda afnumin eftir 15. júlí í Laxá Veiði Sjóbirtingsveiðin fer vel af stað Veiði Gæsaveiðin fer rólega af stað Veiði Minnivallalækur tekur við sér Veiði