Íslenski boltinn

Fjölnir mætir liðum frá Búlgaríu, Danmörku og Noregi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kristinn Freyr Sigurðarson er leikmaður Íslandsmeistara Fjölnis í Futsal
Kristinn Freyr Sigurðarson er leikmaður Íslandsmeistara Fjölnis í Futsal Mynd/Vilhelm
Í dag var dregið í riðla í undankeppni Futsal Cup, Evrópukeppninnar í innanhússknattspyrnu. Fjölnir mætir BGA Futsal frá Danmörku, Vegakameratene frá Noregi auk MFC Varna frá Búlgaríu sem eru gestgjafar riðilsins.

Leikirnir fara fram á tímabilinu 13.- 21. ágúst og efsta lið riðilsins kemst áfram í aðalkeppnina.

Fjölnir varð Íslandsmeistari í desember síðastliðnum þegar liðið sigraði Víking Ólafsvík í úrslitaleik 3-2. Íslandsmeistararnir 2011 voru því krýndir árið 2010 en Íslandsmótinu var flýtt vegna þátttöku íslenska landsliðsins í Evrópukeppninni í janúar síðastliðnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×