Íslenski boltinn

Guðjón Þórðarson áminntur - BÍ/Bolungarvík fær sekt

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðjón Þórðarson slapp við leikbann en var áminntur af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ
Guðjón Þórðarson slapp við leikbann en var áminntur af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ Nordic Photos/Getty
Guðjón Þórðarson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur hefur verið áminntur af Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna ummæla hans að loknum leik Vestfirðinga gegn Þrótti Reykjavík þann 26. júní síðastliðinn. Knattspyrnudeild BÍ/Bolungarvíkur var sektuð um 25 þúsund krónur vegna ummælanna.

Guðjón var afar ósáttur við gult spjald sem Tomi Ameobi framherji BÍ/Bolungarvíkur hlaut í leiknum sem lauk með jafntefli, 2-2.

Guðjón velti því fyrir sér í viðtali við Stöð 2 hvort litarháttur Tomi Ameobi, framherja BÍ/Bolungarvíkur, væri þess valdandi að dómarar hefðu gefið honum fjögur gul spjöld á tímabilinu. Leikmenn sem fá fjögur gul spjöld þurfa að taka út eins leiks bann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×