Íslenski boltinn

Dregið í undanúrslit Valitor-bikarsins í hádeginu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
KR á lið í undanúrslitum í karla- og kvennaflokki
KR á lið í undanúrslitum í karla- og kvennaflokki Mynd/Vilhelm
Dregið verður í undanúrslit í Valitor-bikarsins í knattspyrnu í hádeginu í dag. Drátturinn fer fram í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli og hefst klukkan 12.

Liðin í pottinum kvennamegin eru: Afturelding, Fylkir, KR og Valur. Áætlað er að leikirnir fari fram 22. júlí.

Liðin í pottinum karlamegin eru: BÍ/Bolungarvík, ÍBV, KR og Þór.

Athygli vekur að þrjú af fjórum liðum í pottinum karlamegin eru af landsbyggðinni. Áætlað er að leikirnir fari fram 28. júlí.

Viðbrögð fulltrúa liðanna við drættinum verða birt á Vísi að honum loknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×