Íslenski boltinn

Baldur: Ég var stressaður fyrir þennan leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta er frábært og mér líður gríðarlega vel," sagði Baldur Sigurðsson, leikmaður KR, eftir leikinn í kvöld.

„Ég var mjög stressaður fyrir þennan leik þar sem KR hefur alltaf átt erfitt með Keflavík. Þeir koma alltaf vel stemmdir gegn okkur og erfitt er að eiga við Keflavík í þeim ham".

„Þetta var frábær leikur í rigningu og vindi sem bauð upp á margar tæklingar og læti. Það besta sem lið getur gert þegar það lendir snemma undir er að svara fljótlega og það gerðum við í kvöld. Það gerði það að verkum að við komumst aftur inn í leikinn. Keflvíkingar ná síðan að minnka muninn undir lokinn og úr varð hörku lokakafli, en við náðum að halda út," sagði Baldur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×